Main menu:
Opnunartími.
Við verðum með opið í allan vetur í lasertag. Að sjálfsögðu ræður veður miklu um hvort hægt sé að spila en verstu aðstæður eru mikil rigning og bleyta. Paintball verður opið einnig á meðan snjólaust er. Við verðum síðan með einhverja tíma inni í íþróttahúsinu á Dalvík í vetur og á fleiri stöðum. Nánar um það síðar.
Medic box.
Nú höfum við tekið í notkun medic box. Hvort lið fær eitt slíkt með sér í leikinn og getur því "endurlífgað" leikmenn. Þetta tryggir að allir ná að spila í klukkutíma í stað þess að áður lentu menn í því að vera jafnvel búnir eftir 20 mínútur.
Paintballvöllur færður.Við erum búin að færa paintballsvæðið niður fyrir þjóðveginn. Einnig getum við tekið á móti lasertaghópum í skógreitinn sem er í svokölluðum Hádegishól neðan við svæðið. Þetta svæði hentar mun betur fyrir paintball bæði kemur þetta fyrr undan snjó og svo er það með minni hæðarmun.
Hér til hliðar eru tenglar á ýmis mál sem gætu reynst upplýsandi en ef einhverra annarra upplýsinga er óskað, þá hikið ekki við að senda okkur póst eða slá á þráðinn.
Símanúmer: 8243990 og 4661828